BM Vallá er Framúrskarandi fyrirtæki árið 2023 samkvæmt lista Creditinfo sem birtur var í morgun. Fyrirtæki sem teljast framúrskarandi þurfa að uppfylla ströng skilyrði og eiga það sameiginlegt að byggja rekstur sinn á sterkum stoðum og efla hag allra. Þau skilyrði sem Framúrskarandi fyrirtæki þurfa að uppfylla eru:
- Fyrirtækið er í lánshæfisflokki 1-3
- Ársreikningi skal skilað lögum samkvæmt eigi síðar en átta mánuðum eftir uppgjörsdag.
- Fyrirtækið er virkt skv. skilgreiningu Creditinfo
- Rekstrartekjur að lágmarki 55 milljónir króna reikningsárið 2022 og a.m.k. 50 milljónir króna 2021 og 2020
- Fyrirtæki með rekstrartekjur yfir 5 milljarða króna þurfa að fylla út spurningalista um sjálfbærni
- Framkvæmdarstjóri skráður í fyrirtækjaskrá RSK
- Rekstrarhagnaður (EBIT) > 0 reikningsárin 2020-2022
- Jákvæð ársniðurstaða reikningsárin 2020-2022
- Eiginfjárhlutfall a.m.k. 20% reikningsárin 2020-2022
- Eignir að minnsta kosti 110 milljónir króna reikningsárið 2022 og a.m.k. 100 milljónir króna 2021 og 2020.
Við erum stolt af þessum árangri, en að baki hans liggur metnaðarfullt starf, undirbúningur og skýr stefnumörkun sem okkar frábæra starfsfólk hefur að leiðarljósi. Takk fyrir viðurkenninguna sem við þökkum okkar frábæra starfsfólki og viðskiptavinum, án þeirra væri þetta ekki mögulegt. Við óskum einnig öllum Framúrskarandi fyrirtækjum til hamingju með árangurinn.