Framkvæmdafélagið Höfði ehf hefur keypt hluta af svæði BM Vallá við Breiðhöfða 3 og Bíldshöfða 7. Samningar við Reykjavíkurborg um íbúðauppbyggingu liggja fyrir og er í takt við fyrirhugaða íbúðabyggð á Ártúnshöfðasvæðinu þar sem uppbygging er að hefjast.
Framkvæmdafélagið Höfði ehf mun í framhaldi af kaupunum leiða deiliskipulagsgerð fyrir BM Vallá svæðið í samráði við Eignarhaldsfélagið Hornstein ehf eiganda BM Vallá. Sé miðað við nýtingarhlutföll í nýlega samþykktu deiliskipulagi á Ártúnshöfða má gera ráð fyrir allt að 1000 íbúðum auk skrifstofu, verslunar- og þjónusturými á heildarreitnum.
Eignarhaldsfélagið Hornsteinn ehf hyggst færa starfsemi sína af svæðinu í áföngum á næstu tveimur til sex árum.
Framkvæmdafélagið Höfði ehf er í jafnri eigu M3 fasteignaþróunar ehf og E3 ehf, en bæði félögin eru í íbúðaruppbyggingu víða á höfuðborgarsvæðinu.
Örn V. Kjartansson, eigandi M3 fasteignaþróunar:
“Lóð BM Vallá á Ártúnshöfða er einstök lóð til að skipuleggja íbúðarbyggð. Með Fornalund gróin skrúðgarð í miðju svæðinu gefst tækifæri á að þróa vistvæna byggð sem stendur hátt uppi á Ártúnshöfða með útsýni yfir borgina. Framkvæmdir við fyrsta áfanga gætu hafist eftir tvö ár.”
Þorsteinn Víglundsson forstjóri Hornsteins:
“Samningurinn við Höfða markar þáttaskil í starfsemi BM Vallá ehf. Félagið hefur um áratuga skeið starfrækt steypustöð og margvíslega aðra starfsemi á Ártúnshöfðanum en nú hefur fyrsta skrefið í endurstaðsetningu starfseminnar verið stigið. Ártúnshöfðinn er spennandi uppbyggingarsvæði fyrir íbúðarbyggð og það er ánægjulegt að sjá Fornalund, sem BM Vallá hefur lagt metnað sinn í að vernda í gegnum áratuga veru sína á svæðinu, fá nýtt hlutverk í hjarta fallegrar íbúðabyggðar.”