Steypudælur

Fjölbreytt úrval af öflugum steypudælum leysa verkið hratt og örugglega. Allt frá liprum litlum dælum sem henta vel við þröngar aðstæður upp í stórar, langar og kröftugar sem henta vel í stór verk.

Allar dælurnar eru skoðaðar einu sinni á ári af erlendum aðila. Einnig er búið að uppfylla ströngustu skilyrði á dælunum þannig að allar dælur eru með gúmmístúta í stað stálstúta til að tryggja fyllsta öryggis viðskiptavinarins.

Hafðu samband við ráðgjafa okkar í síma 412 5100 varðandi val á steypudælum sem henta þínu verki.

S47 SX

Er nýjasta og afkastamesta dælan. Hún er 47m og með 5 arma. Einnig er hún stærsta dæla landsins.

Skoða vinnuradíus
Putzmeister
PUTZMEISTER 720

Ný og öflug stimpildæla sem er notuð til að dæla sandlögunum og steypu frá 50-100mm breiðum slöngum. Mikil afkastageta og getur dælt allt að 21 M3 pr.kl., 300 m lárétt og 100 m lóðrétt.

S31 XT

Er hönnuð til að steypa í þröngum aðstæðum hún er útbúinn skotbómu sem gerir henni kleift að stilla sér upp í lágri lofthæð lámarkshæð er 5,7m. Lítil og öflug dæla.

Skoða vinnuradíus
S36 X

Er 36 metra dæla með 4 arma.

Skoða vinnuradíus
S38 SX

BM Vallá er með þrjár 38 metra dælur. Dælan er 5 arma. Mjög öflug tæki og geta leyst flest verk.

Skoða vinnuradíus
S43 SX III

Er 43 metra löng dæla með 5 arma og leysir vel flestar aðstæður.

Skoða vinnuradíus